21desember

Heilar og sælar ;)

Nú er komið að því... Næsti eitur-klúbbur mun eiga sér stað heima hjá mér, 26. desember kl. 20:30...

Hver og einn kemur með sína drykki, óáfengir og áfengir velkomnir.. Við Júlía ákváðum hver skyldi koma með hvað og hér er listinn:

Júlía: vínber, saltstangir

Birgitta: 2x gulur Doritos

Hildur: ostasalat

Unnur: kex, ídýfu

Hilma: 2x ostur (papriku t.d.)

Þórveig: Doritos dip



Hlakka til að hitta ykkur í brjáluðu stuði og þið eruð allar velkomnar með spil, ég á bara Trivial.. ;)

ÞórveigKiss
21. desember 2008 klukkan 23:19
EITUR-klúbburinn
Almennt
1 athugasemd
02janúar

myndir

well well.. GLEÐILEGT NÝTT ÁR krúttur!Koss Og takk fyrir það gamla.. uss, góðir klúbbar á því ári:) Eitur er einmitt eins árs núna.. mikið er tíminn fljótur að líða...Hissa

Ætlaði bara að láta ykkur vita að ég setti þessar örfáu myndir sem ég á frá síðasta klúbb, 20. des, í sama albúm og hinar. Tengillinn er hér til hliðar.. og þið verðið endilega að setja ykkar inn líka!Hlæjandi Hver átti myndirnar sem voru teknar af okkur við jólatréð? Verð að sjá jóla-eitrin saman!!;)

Ég flyt nottla á morgun og shit hvað ég á eftir að sakna ykkar mikið.. verðum að fara að skipuleggja næsta eitur sem fyrst.. þegar við erum allar heima!!!! Það verður veisla!!! hehehe

Og hey, gells.. uppfæra um ykkur sjálfar.. og sumar að byrja að gera um sig!:)

En við sjáumst bara síðar.. náði ekki að kveðja ykkur allar en það er ekki eins og maður sé brottfluttur af landinu:) Hlakka til næsta hittings!!! KISSSSSSSS Hilma ÓskSvalur
02. janúar 2008 klukkan 21:27
EITUR-klúbburinn
1 athugasemd
18desember

Christmas is the time of joy, and Partay... vúhú;)


Jæja.. nú er ungfrú Ofur-eitur komin heim þannig að nú er málið að stefna á eins og eitt stykki klúbb.. helst svona áður en Hilma og Unnur fara..Hlæjandi

Ég heyrði að Júlía væri til í að halda klúbbinn heima hjá sér.. líst vel á það.. og hvernig væri að hafa jólapúkk (pakkapúkk)?? Þá þurfum við ekki að kaupa allar 5 gjafir hver, ekki það að einhver okkar hafi stefnt á það. nema kannski Unnur, nýi meðlimurinn! Reyna að sleikja okkur upp svo að vígslan verði ekki of ógeðsleg eða sjúk.. ég stakk upp á, í síðasta klúbbi, að hún hlypi nakin í kringum húsið mitt! Eins furðulega og það hljómar þá samþykkti Unnur það en ekki hinar eitur-gellurnar... mér fannst það rosa góð hugmynd, þó svo að ég myndi frekar stofna annan klúbb heldur en að gera þaðGlottandi

en aftur að aðalatriðinu.. TE-klúbburinn er klárlega búinn að vera duglegri en við, ekki á öllum sviðum samt! Eiginlega bara í klúbbakvöldum þannig að við verðum að bretta upp ermarnar og fara að standa okkur... Eru allir MEMM???Ullandi
en svona í alvöru þá verður að vera klúbbur fljótlega.. helst bara í þessari viku!

Við hittumst annað kvöld og ræðum málin, endilega kommenta á þessa hrikalega góðu færslu mína..

Eitur-gellan Þórveig
Koss
18. desember 2007 klukkan 02:46
EITUR-klúbburinn
8 athugasemdir
12september

Stelpur!!!??

Jææææja pjöllur!
Hvenær verdur næsti klubbur?
Vid thurfum ad fara ad akveda thad sko;)
Tillögur eru best geymdar í kommentum thessa fallega "bloggs":D
Kv, HEG Ofureitur

12. september 2007 klukkan 10:57
EITUR-klúbburinn
Engin athugasemd
06júní

stelpur-stelpur

jæja stúlkur!..  nú erum við bara á allra síðasta séns með að hittast allar!! Eða reyndar gerist það sennilega ekkert í bráð þar sem Kittú eignaðist lítinn engil um daginn.. til hamingju með það elskan;* En Hildur ofur-eitur er að fara gerast útlendingur þann 17. eða 18. júní, svo að þetta bara verður að fara að gerast.. jú nó! verðum að stefna á stuttan fund sem allra fyrst.. endilega hóa eitrin saman!!!

06. júní 2007 klukkan 00:50
EITUR-klúbburinn
3 athugasemdir
18apríl

eiturmyndir

jæja.. var að setja inn myndir frá 4.apríl.. þær eru reyndar ekkert margar.. eeeen nokkrar þóHlæjandi þær eru bara í sama albúmi og hinar myndirnar mínar.. hér til hliðar...

En hvað segiði stelpur? hvenær á að planleggja næsta eitur? er það alveg á hreinu að hann verði hjá Birgó eða hvað? Það er ekkert of langt í hann.. erum við ekki bara að tala um eftir prófin eða?Svalur ég er allavega búin 11. maí og byrja strax að vinna, erum allar að vinna þannig að við verðum að fara að reyna að festa tíma:) gengur ekkert annað.. en ég og Birgó erum alltaf að vinna á sama tíma.. þannig að þið vitið það héreftir.. Síðan verðum við nú að hafa þetta áður en Kittú okkar á að eiga.. það er nú bara alveg skuggalega stutt í það!!;)

En það er alveg spurning um það að taka nýja meðlimi inn.. eins og var verið að tala um í síðasta bloggi... einhvernvegin skylst mér að Einari Má langi alveg æææægilega að vera memm!:) haha... honum finnst þetta líka alveg geggjuð síða!;) spurning um að vera abbó af því hann getur ekkert gert sem er svona eitursvalt!!!:) HAHA

Síðan vil ég biðja stelpurnar (Birgó eitur og Kittú eitur) að skrifa um sig:) það þarf ekki að taka meira en 1-2 mínútur af ykkar lífi..

Kv; Hilma ósk yfir-eiturGlottandi
18. apríl 2007 klukkan 10:50
EITUR-klúbburinn
2 athugasemdir
13apríl

frábær eiiturklúbbur..

Á miðvikudaginn 4. apríl var haldinn EITUR-klúbbur heima hjá Hildi Evu, hún var sveitt að þrífa allan daginn en það kom sér bara velHlæjandi Unnur Erlingsd. var heiðursgestur. Hún fékk að vera með einn klúbb og það var bara mjög fínt að hafa hana. Í framtíðinni, þegar Hildur yfirgefur okkur og Kittú fer til Akureyrar, gæti hún fengið inngönguSvalur Ef þið viljið sækja um, þá talið bara við eitthvað af okkur EITRUNUM, við tökum við umsóknunum!

Þegar við allar vorum mættar komumst við að því að það kunni engin okkar að grilla nema Kittú, þannig að við stofnuðum óléttu konunni í hættu og fengum hana til að grilla fyrir okkur, nema Birgitta grillaði sinn kjúkling sjálfUllandi Eftir matinn var komið að eftirréttinum hennar Þórveigar, marengsterta með rjóma, bláberjum og jarðarberjum á milli og súkkulaði sósu ofan á... hljómar vel ekki satt?? það var algjör draumur í dós, og vorum við allar vel saddar og sáttar með matinn.

Eftir matinn fór Júlía að græja hárið á Þórveigu, Hildi og Unni, meðan Hilma og Birgitta foru að tala við einn Brasilískan strák á skype, með webcam og alles... Kittú var farin heim..Gráta  Þegar allir voru orðnir fínir og sumir vel í því var farið á Bauksa á ball með VON.. Það var mjög skemmtilegt ball, fyrir suma allavega.. segjum ekki meira!!

Þetta var alveg frábært kvöld og vel heppnað og hefur verið ákveðið, eða svona um það bil, að Birgitta haldi næsta klúbb sem verður í maíKoss

Takk fyrir okkur, og koma svo.. KOMMENTAGlottandi

The POISONS
13. apríl 2007 klukkan 08:40
EITUR-klúbburinn
2 athugasemdir
01apríl

eitur miðvikudaginn 4. apríl?

jæja gellur!
nú er komið að því.. að við eitrin hittumst loksins og skemmtum okkur;) Búið er að ákveða að það er hittingur heima hjá Hildi ofur-eitri á miðvikudaginn næstkomandi eða 4. apríl:) Mjög hentugur tími þar sem skólastelpurnar eru í fríi í skólanum og ekki að vinna... já, og vinnustúlkurnar eru ekki að vinna né að fara að vinna snemma daginn eftir? eða hvað... allavega.. tilvalið kvöld.. og við erum sko að tala um það að það er ball á Bauksa þetta kvöld að mér skilst með Von og við verðum nú að fara að dusta rikið af dansskónum okkar og skemmta okkur feitt á balli líkaSvalur bara geggjað !! reyndar þurfa sumar af okkur ekkert að dusta rikið þar sem þær eru oftar en ekki úti á lífinu.. en jáh, sérstaklega Hildur sem þarf að pússa sína skó hressilega.. þar sem hún hefur ekki fengið sér í glas síðan síðustu helgina sem svíarnir voru hér? hehe og hvað segir það okkur?? Hún er brjáluð í svía.. sérstaklega EMMA beibUllandi ahaha..
Unnur ætlar að vera memm og ekkert nema gaman af því;)

En við verðum að fara að plana kvöldið.. Hildur hringdi í mig í fyrradag minnir mig og hún stakk upp á grilli af því að hún var að kaupa grillkjöt;) hversu geggjað verður það??? verðum síðan að fara að ákveða hver kemur með gos... eða hvítt eða rautt eða hvernig sem þið viljið hafa þetta?? meðlæti, nammi?? stelpur.. þetta verður bara að fara að ákveða!!! Hildur á ég að kíkka í heimsókn á morgun og við skipuleggjum eða eigum við allar að hittast eða hvað??

it's up to you poisons!;)


Hilma EITUR !!
01. apríl 2007 klukkan 21:22
EITUR-klúbburinn
6 athugasemdir
26mars

Sá breyting

hæhæ ég var að leika mer smá á þessari síðu og ég skellti inn annari könunn og endilega takið þátt í henni !! en ég hef ekkert að segja nema það að ég vil að við Eitrin hittumst núna um páskana skemmta okkur þa kannski höfum við eitthvað um að tala um !!  en vildi láta aðeins heyra í mer ég kveð í bili
 Júlía Eitur
26. mars 2007 klukkan 21:53
EITUR-klúbburinn
1 athugasemd
22mars

síða fyrir eitur

Fallegasti klúbburinn þó víða væri leitaðSvalur

Sumsé stelpur, núna gerum við þetta almennilega, höfum þetta töffaða síðu.

Einnig eru komnar inn nokkrar myndir frá fyrsta formlega kvöldinu okkar sem EITUR!!!! sumar mis fallegar á þeim en samt fallegar engu að síður...Koss

Thank uSaklaus
22. mars 2007 klukkan 15:32
EITUR-klúbburinn
2 athugasemdir

Könnun

Hver er AÐAL eitrið??

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan